Golfvinafélagið Skollarnir
Jakkamótaröðin, Bikarinn og Hendrick's skjöldurinn – öll úrslit frá stofnun félagsins á einum stað.
Jakkamótaröðin
Jakkinn
Sundurliðun móta
| Dags. | Völlur | Mót | 1. sæti | 2. sæti | 3. sæti | 4. sæti | Skorkort |
|---|
Holukeppni með fullri forgjöf
Bikarinn
Hlutfallsleg forgjafarlækkun
Hendrick's
Stigasöfnun yfir sumarið
Hliðarkeppnir
Regla 19: Séu tveir eða fleiri jafnir að stigum í lok sumars sigrar sá sem fékk síðast stig og jafnaði efsta mann.
Heiðurshöllin
Handhafar Jakkans frá 2013
Smelltu á ár til að skoða það tímabil.
Samtala titla
Öll meistaraskráin
Virkar keppnir
| Ár | Jakkinn | Bikar | Hendrick's | Birdie+ | Drive | Par 3 |
|---|
Keppnir sem hafa verið lagðar niður
| Ár | Texas | 18. teigur | Bjór |
|---|
Myndasafn
Myndir
Stofnskrá & reglugerð
Lög og reglur
Lög Golfvinafélagsins Skollanna
1. gr.
Félagið heitir Golfvinafélagið Skollarnir.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er það sama og lögheimili formanns þess hverju sinni.
3. gr.
Stofnfélagar eru:
- Friðjón Gunnlaugsson
- Guðjón Ingi Guðlaugsson
- Hákon Hrafn Sigurðarson Gröndal
- Magnús Þórður Rúnarsson
4. gr.
Tilgangur félagsins er að meðlimir þess hittist reglulega og leiki golf sér til skemmtunar með það að leiðarljósi að bæta leikni sína og getu í golfíþróttinni.
5. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda utan um:
- Golfmótaröð (Jakkinn)
- Bikarkeppni (Bikarinn)
- Hlutfallsleg forgjafarlækkun (Hendrick’s skjöldurinn)
- Hliðarkeppnir
6. gr.
Aðalfund félagsins skal halda árlega eftir 1. október en eigi síðar en 1. desember ár hvert. Aðalfundur er jafnframt lokahóf félagsins. Hann skal haldinn í húsnæði formanns félagsins og skal boðað til fundarins með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Matarveisla a la Formaðurinn.
- Uppgjör sumarsins & verðlaunaafhending.
- Laga- og reglubreytingar.
- Kosning formanns & stjórnar.
- Önnur mál.
7. gr.
Stjórn félagsins er kjörin á aðalfundi til eins árs í senn og skal hún skipuð fjórum félagsmönnum; formanni, varaformanni og tveimur meðstjórnendum. Formaður er kosinn á aðalfundi. Formaður velur sér varaformann. Formaður er jafnframt gjaldkeri og ritari. Firmaritun er sameiginleg í höndum allra stjórnarmeðlima.
8. gr.
Formaður og/eða varaformaður skulu sjá um undirbúning og utanumhald móta skv. 5. gr. laga þessa. Formaður boðar til funda.
9. gr.
Félagsaðild er lokuð nýjum meðlimum nema með samþykki meirihluta stjórnar.
10. gr.
Gestum er heimiluð þátttaka á mótum félagsins með samþykki meirihluta stjórnar.
11. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur á aðalfundi.
12. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til stofnmeðlima.
13. gr.
Lög þessi ásamt upplýsingum um stjórn, reglur um mót skv. 5. gr. laga þessa skulu vera aðgengileg á heimasíðu félags.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi 12. nóvember 2016.
Jakkamótaröðin · Jakkinn
- Mót skulu annað hvort vera 18 eða 9 holur.
- Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sæti í lok mótaraðar skal sá sem jafnaði efsta mann (eða menn) í síðasta mótinu vera útkljáður sem sigurvegari.
- Séu tveir eða fleiri jafnir í einhverjum af þeim sætum sem um ræðir þá skal betra skor á seinni níu holum vallarins gilda. Dugi það ekki til þá skal fyrst telja síðustu sex holurnar, því næst síðustu þrjár holurnar, svo síðustu holuna, þá holu 17 og áfram niður þangað til úrslit fást með betra skori á holu. Ef það dugir ekki til skal hlutkesti ráða úrslitum.
- Séu 9 holur spilaðar og tveir eða fleiri jafnir í einhverjum af þeim sætum sem um ræðir þá skal betra skor á síðustu þrem holum vallarins gilda. Dugi það ekki til þá skal fyrst telja síðustu holuna, svo holu 8 og áfram niður þangað til úrslit fást með betra skori á holu. Ef það dugir ekki til skal hlutkesti ráða úrslitum.
- Öll mót í mótaröðinni skulu vera höggleikur með fullri forgjöf.
- Sá sem endar í neðsta sæti í mótaröðinni skal sjá um að Jakkinn sé merktur nýjum sigurvegara fyrir lokahófið. Kostnaður vegna merkingar fellur á þann aðila.
Bikarkeppni · Bikarinn
- Formaður skal leggja fram drög af áætluðum leikdögum bikarkeppninnar samhliða drögum af Jakkamótaröðinni sbr. regla 4.
- Endi leikur með jafntefli að loknum 18 holum skal betra skor á seinni níu holum vallarins gilda. Dugi það ekki til þá skal fyrst telja síðustu sex holurnar, því næst síðustu þrjár holurnar, svo síðustu holuna, þá holu 17 og áfram niður þangað til úrslit fást með betra skori á holu. Ef það dugir ekki til skal hlutkesti ráða úrslitum.
- Sá sem endar í neðsta sæti í bikarkeppninni skal sjá um að bikarinn sé merktur nýjum sigurvegara fyrir lokahófið. Kostnaður vegna merkingar fellur á þann aðila.
Forgjafarlækkun · Hendrick’s
- Sá sem endar í neðsta sæti í hlutfallslegri forgjafarlækkun skal sjá um að Hendrick’s skjöldurinn sé merktur nýjum sigurvegara fyrir lokahófið. Kostnaður vegna merkingar fellur á þann aðila.
Hliðarkeppnir & annað
- Birdie+: Eitt stig fyrir fugl, tvö fyrir örn, þrjú fyrir holu í höggi og fimm fyrir albatross.
- Drive: Eitt stig fyrir að vera með lengsta drive á braut á tiltekinni holu sem formaður ákveður í hverju móti.
- Par 3: Eitt stig fyrir að vera næstur holu á par 3 holu.
Reglur þessar voru síðast samþykktar á aukafundi 10. september 2024.